úff... já ef þetta var ekki snilldar ferð...
En já margt er búið að vera að gerast að undanförnu, bæði frábært og einnig pínu sorglegt.
En hann Haukur elsku besti afi minn lést fyrir skömmu(blessuð sé minning hans). Hann var nú mikill og merkur maður og einn sá mesti grallari sem ég veit um,enda kunna allir einhverjar sögur af prakkastrikum hans. En ég ætla nú ekki að fara að tala um þetta hér, enda veit ég að hann er búin að finna sér hest og þeytist nú um hóla og hæðir alla daga.
En tökum upp léttara hjal...
Danmerkurferð...hin langþráða danmerkurferð...
Okey, ég nenni ekki að skrifa hana frá a-ö þannig að ég skal segja það helsta..
Ég verslaði ekkert....well jú ég verslaði bjór, rauðvín,bjór... allavega þá verslaði ég engin föt, það var ekki farið í eina búð... enda var þetta snilldarferð.. Það var bara setið og drukkið bjór og rauðvín og farið á klúbba og látið reka sig út úr leigubíl (og já við vorum rekin út úr bílnum fyrir að tala saman, já honum fannst við tala of hátt og mikið saman).
á laugardeginum var sól og frábært veður og þá fórum við niður á Strikið og við vorum kannski að spá í að fara að versla smá.... en það breyttist í billjardkeppni sem ég og hún yndislega frænka mín unnum....tvisvar (þetta var semsagt stelpur á móti strákum) eftir þennan glæsta sigur þá var ekkert annað að fagna sigri og gleyma öllum verslunarferðum....
En okey í stuttu máli þá var þetta allt of stutt ferð og mig klæjar í puttana mig langar svo aftur út núna....
En ég fer aftur og það á ekkert að vera svo langt í það...
En ég mun setja inn myndir af þessari ferð....allavega eitthvað af myndunum, það verður valið úr, sumar eru einkamyndir og verða það :) En þar sem að ég gæti talað um það endalaust hvað þetta var mikil snilldarferð þá ætla ég að hætta núna.
þriðjudagur, september 25, 2007
mánudagur, ágúst 27, 2007
loks á leið í danaveldið og menningarvaka
Já þá er menningarvaka eða akureyrarvakan búin og þetta var frábær laugardagur, fullt um að vera víða í bænum, bæði verið að skrifa á vegg (Steinn hinn mikli) eða verið að sýna stóla og bjóða upp á súpu (gallerý DaLí, samsýning frábærra listamanna frá Tolla til Helga Þorgils til Vigdísar til allra hinna og Snorra Birgis) eða verið með bókverk úr fiskhausum (Þorsteinn í Kom inn, minnsta gallerýi landsins) eða boðið upp á videoverk og popp (boxið, samsýning 23 listamanna) og svo var honum Jónasi Hallgrímssyni gerð góð skil (Ketilhúsið, samsýning) og einnig var boðið að skrifa á veggi pennans (Hlynur Hallsson var með spray-verk) síðan voru grafítarar eða grafítari að graffa (Margeir var að graffa á veggi DaLí) maður gat einnig arkað inn á Listasafnið (samsýning þeirra sem tilnefndir eru til sjónlistarverðlauna í ár) og ég gæti haldið áfram og áfram og einnig áfram.. en ég bara nenni ekki að skrifa það allt, það var svo mikið um að vera og ég tala nú ekki um lokaatriðið.
það í raun byrjaði á tónleikum stórsveit Samúels (Samma úr Jagúar) og ef löppin mín hefði verið í lagi þá hefði ég dansað af mér skóna, þeir voru svo flottir en aulinn ég gleymdi að kaupa diskinn af þeim. Svo kom heljar atriði í lokin og þar sem ég nenni ekki að skrifa um það þá mæli ég með að þið skoðið myndir af því inn á myndasíðunni minni undir Akureyrarvaka....
En allt tekur enda og þetta kvöld gerði það, í populus tremula á tónleikum Leonards Cohens... nei hann mætti ekki, þetta voru heimilistribute-tónleikar... mjög kósý og svo var tölt yfir götuna á Karó... já allar leiðir enda á Karó eða byrja.. allt eftir því hvernig horft er á það... en þar var stappað af listamönnum og fólki, listamenn eru líka fólk og fólk eru líka listamenn... eftir viðveru á Karó var haldið heim... enda stangur dagur að kveldi eða nóttu kominn og varla hægt að toppa hann betur en gert var.....
mæli ég hér með að allir fari á næsta ári á þessa stórmerkilegu hátíð, það er ekkert sparað og allir eru með, ungir og aldnir og betri skemmtun er varla hægt að finna...........
En svo er ég á leið til Köben 21 sept.... yes yes yes yes ég er á leið ég er á leið til Dk ...... hell yeah people...
miðvikudagur, ágúst 22, 2007
enn er sýning í gangi
já sýningin er til 9.sept.....
En ég er víst enn haltrandi og er orðin alveg %$&$$####% þreytt á því, enda er ég alltaf að reyna mig í tröppum og stigum, en gengur samt hálf brösulega þar sem að löppin samþykkir ekki enn að beygja hnéið.... Þarf að ræða þetta betur við hana..
En nú er menningarnótt búin og þetta var alveg ágætisdagur eða bara rosalega fínn, enda var ég í rosalega flottu brúðkaupi hjá Berglindi og Unnari, enn og aftur til hamingju með góðan dag :-)
Svo næstu helgi fer fram mikil hátíð norðan heiða.... já þá fer í hönd, menningarvakan og mæli ég eindregið með henni,enda er þetta mikið gleðihátið og margt að sjá og ekki skemmir að skreppa á Karó og fá sér kaffi eða öl..
En meira er ekki á dagskrá hjá mér í bili...
Ég er semsagt að vinna og komst að því að það er ekki sniðugt að reyna að lesa eitt nafn og segja svo sitt í leið, enda hét í Kristján í einu símtali, en samt bara þar til ég leiðrétti mig..
í fréttum hmm.......j, nú skil ég ekkert í þessari blessuðu %&%###% lögreglu sem á að vera til að halda uppi lögum og landi manna og dýra... Hvernig datt þeim í hug að fella niður ákærur á hestamanninn sem sást berja hestinn gráa, ég er bara yfir mig hneyksluð( hneykslunarsvipur)... Það er semsagt allt í lagi að berja hesta og önnur dýr sem ekki getað varið sig eða farið í mál sökum málleysis eða mannamálleysis.. uss uss.. %#3%##%#### lögreglan
Annars er ég nokkuð hress og bið bara að heilsa
sunnudagur, ágúst 12, 2007
sýning í gangi
já það er sýning í gangi, það eru reyndar tvær sýningar í gangi, ein fyrir norðan, handverksýningin í Hrafnagili, en þar er grállistahópurinn að sýna og svo er auðvitað aðalsýningin........
En það er MÍN sýning á Kaffi VOR á Laugarvegi, (á milli skífunnar og Barsins) og svo er Kling og bang á móti... en þar verð ég með sýningu til 9. sept... og allt er til sölu... nema það sem er selt nú þegar, það er ekki lengur til sölu en hitt er til sölu, það sem er ekki með rauðan depil fyrir neðan sig er til sölu..... you got it...
En ég er enn með veika löpp og má ekkert gera(ég má ekkert gera en ég geri sumt).. á að nota hækjur og nota þær stundum.... já stundum en ég nota þær allavega stundum....
ég má svo ekki fara að vinna fyrr en á fimmtudaginn og ég verð að segja að ég hlakka til... já ég bara verð að segja það... ég hlakka til að fara að vinna aftur.. i just had to say that
En meira hef ég ekki að segja.... Það var opnun í dag og það var að vísu ekkert voðalega fjölmennt en það var afskaplega góðmennt, enda voru bara fleiri snittur fyrir okkur....
Og nú er ég farin að lesa Harry Potter....

þriðjudagur, ágúst 07, 2007
allt að gerast þessa vikuna
Já þá er komin ágúst og næstum því haust(alltaf þegar verslunarmannarhelgina er búin þá fer að koma haust), og hér sit ég, nei ég ligg víst hérna upp í sófa þar sem að ég var að koma úr hnéaðgerð í dag og það er ekkert rosalega gott þegar deyfingin er að fara,en ég á Voltaren og VOD-ið.... þannig að ég er í góðum málum.. Já Vodið er videoleiga Skjásins, það bjargar manni í veikindum. Ef þið viljið Vodið hafið þá bara samband við 8007000 ;-) Ég mun samt ekki svara þessa vikuna,þar sem að mér var bannað að fara í vinnuna fyrr en á föstudaginn (eftir læknisskoðun).....
Þeir sem mig þekkja vita hvað ég hef gaman að því að liggja hér fyrir og gera ekki neitt nema horfa á tv.................or not, enda fær hausinn minn meira en nóg að gera núna, sérstaklega þar sem að ég mun vera með sýningu næstu helgi á Vor (við hlið Barsins)
Já ég mun vera með málverkasýningu næstu helgi á Kaffi Vor á laugarveginum
En þetta var nú fín helgi, fór ekki langt nema á Sunnudeginum skrapp ég austur til Pabba og Eydísar og skellti mér á hestbak(enda verða víst nokkrir mánuðir þangað til ég má fara á hestbak aftur) og þar var sól og sumar og það er nú alltaf gott og gaman að skreppa í sveitina.
Á laugardaginn var svo galakveðjupartý fyrir hana Fríðu skvísu sem er að fara til Kína á morgun, hann Styrmir, hennar ektamaður ákvað þetta og það voru kjólar og jakkaföt og frábær stemning,nema þegar fara átti á Sirkus.. uss uss þessir dyraverðir geta stundum litið svo stórt á sig. Og þótt að það var komin röð(við vorum fremst að reyna að komast inn) þá fékk engin að fara inn úr röðinni en hann helypti samt fullt af öðru fólki inn.. fíflið sá.. En þá var bara farið á Kaffibarinn í staðinn og svo 11 og síðast en ekki síst var farið á Ölstofuna(þar sem að ég og Helga frænka fengum síðast konunglegar móttökur.. we know the right people hahahaha)
En jæja ég ætla að fara að taka aðra pillu og horfa á VODIÐ ;)

fimmtudagur, júlí 26, 2007
nýjar myndir,,, já loksins loksins kom að því
föstudagur, júlí 20, 2007
long time no.....
Já.
ég veit að það er ekki stutt síðan ég skrifaði síðast... enda líður tíminn allt of allt of hratt þannig að jólalögin fara bráðum að hljóma....
En smá upprifjun... ég heiti Kristín
En já síðustu vikur hafa farið í vinnu,vinnu,vinnu, tekið til í bílskúrnum (aka. vinnustofu), fór svo í fallega jarðaför á mánudaginn hjá henni kæru Hildi Sif.
En eins og þið sjáið eða lesið þá er ástæða fyrir því að ég er ekki að blogga hérna á hverjum degi eða annan hvern dag.. það er bara ekki svo mikið að segja..en ég skal reyna...
Hefur ykkur dreymt um að fötin ykkar séu að reyna að aflífa ykkur... nei? er það þá bara ég... en til að sýna hvað ég er huguð, þá fór ég í peysunni sem reyndi að kyrkja mig í vinnunna...... já ég er huguð stelpa..
ég er að fara í mína þriðju speglun 7 ágúst (verið að fara að skrapa af liðhófanum, hann er rifinn)
það eru loksins komin ský á þennan blá himinn sem hefur verið að þurrka upp tún og blóm..
ég er orðin orðlaus..
nei í alvöru, ég er orðin orðlaus í bili...

þriðjudagur, júlí 03, 2007
aðvörun...
smá aðvörun.... ekki gleyma ykkur yfir lestri bókar í sólinni, það kallar bara á bruna og sár
En nú er mikil hamingja í gangi... DR. phil er að byrja aftur á skjánum, þvílík gleði og ánægja..........þið vitið að þetta er kaldhæðni hérna hjá mér...
Enn er sól og hiti, hver þarf útlönd þegar þeir hafa ÍSland, enda er flest að rigna niður í öðrum nágrannalöndum, það vantar hálfpartinn jafnvægi í veðurfarið,,, hvað varð um það að skipta bróðlega á milli sín, veðurguðirnir hafa greinilega ekki fengið góða uppeldisfræðslu....
Helgin stóðs eiginlega alveg hjá mér að mestu leyti
vá hvað ég hef ekkert merkilegt að segja,nema ég er hálfpartin búin að ákveða hvað ég ætla að vera með á Hrafnagili og svo er ég löngu búin að ákveða hvað ég ætla að vera með á Kaffi Vor í ágúst
meira var það ekki í bili, enda er maður bara að vinna og vinna og kreista sólargeislana frá sólinni

miðvikudagur, júní 27, 2007
nafnlaust
þetta verður nafnlausa bloggið... þeir sem mig þekkja og hafa fengið verk eftir mig vita að ég er ekki mikið fyrir að nefna hluti, hey ég skýrði ekki einu sinni dúkkuna mína þegar ég var yngri. Þannig að ég sleppi þessum hluta núna
En enn er allt á fullu, nema aldrei þessu vant þá var ekki farið á tjútt um helgina, já ég er búin að vera nokkuð dugleg á tjúttinu undanfarnar helgar, en það var í staðinn skellt sér á Apavatn í útileigu,smá Laugarvatnsupprifjanir í leiðinni....
En já nóg að gera á öllum vígstöðum, hausinn minn er á leiðinni að bræða úr sér sökum mikillar hugsunar undanfarna daga, ekki nóg með það ég er búin að vera á námskeiðum alla vikuna og svo vinna til18:00 heldur er ég líka að hugsa um verk sem þarf að vera til 10, júlí og einnig verk sem eiga að vera á sýningu í ágúst hér í bænum... já næsta helgi er semsagt plönuð....
það verða settir saman nokkrir blindrammar
Það verður strekkt á nokkra blindramma
það verður málað
það verður hugsað eitthvað íslenskt...
það verður málað
strekkt á blindramma
skór verða gullsprey-aðir
það verður andað að sér ilmandi lykt af olíulitum,bleki,línolíu, lakki og einnig fleirum eiturilmefnum
var að fá að vita að ég er að fara í partý um helgina, þannig að þá þarf ég aðeins að laga planið mitt...
svo þar á milli verður sofið í nokkra tíma og borðað þegar þess gerist þörf..
En svo er Goldie að koma að spila á Nasa bráðlega......og ég borgaði um 3500 til að láta segja mér að ég þyrfti að fara í sneiðmyndatöku á vinstra hnéi
og eitt til ykkar sem þekkir manninn
Nú ég er búin að sjá hann Sigurð Árna (myndlistamaður.. já hann) hjóla niður á vinnustofuna sína og ég er alveg búin að sjá það út hvers vegna hann eigi svona stórann og sætann hund(sætleikinn kemur þessu samt ekkert við) en þegar hann hjólar þá er hann með hundinn sem auðvitað dregur hann upp allar brekkurnar, verð að spyrja hann um að fá hundinn lánaðann einhverntímann ;)

miðvikudagur, júní 20, 2007
allt brjálað að gera
já gott fólk það er allt að verða vitlaust....... Það er nóg að gera þessa dagana,vinna,vinna,vinna og tónleikar og ég tala nú ekki um helgarnar.
En þar sem að það er nóg að gera þessa dagana þá gerist ekki margt hjá manni, ég gæti sagt ykkur frá vinnunni en það er auðvitað bannað, enda held ég að fæstir hefðu gaman af sögum úr mínu hversdagslegu vinnulífi,enda er best að skilja vinnuna eftir í vinnunni.
En ég fór á Air í gær og vóooo, þeir eru bara snillingar, vélrænir og flottir með sínum franska enskuhreim, ef ég gæti sett inn hljóðefni hér þá gæti ég talað ensku með frönskum hreim fyrir ykkur... en þið vitið sjálfsagt hvernig það hljómar
Svo fór ég í útskrift síðustu helgi, sem endaði eins og venjuleg laugardagskvöld.. á Dillon og Barnum.
En þar hafi þið það, þetta er það sem er að gerast hjá mér, vinna,vinna,vinna og ef ég er ekki að vinna þá er ég að læra fyrir vinnuna...
En ekki kvarta ég.... :) skemmtið ykkur svo vel á Jónsmessunni dúllurnar mínar
þriðjudagur, júní 12, 2007
leiðist að skrifa her

Hæææ hvað segi þið í dag?? Ég? ég segi bara allt þetta besta.......
okey mér leiðist ekki að skrifa hér, bara þarna að ofan..
En það eru komnar myndir inn á "verkin mín og aðrar myndir", bæði af útskriftinni og hittingnum á Prikinu og Boston..... góða skemmtun
Já síðustu vikur og dagar eru búnir að líða eins og eldibrandur, hef að vísu aldrei haft hugmynd um hvernig eldibrandur líður áfram en ég spái því að það sé hratt...
Allt byrjaði þetta í byrjun júní, nóg að gera í vinnunni, nóg að læra úff úff....
En svo var að síðasta helgi sem var rosaleg.. þá var haldið norður til Akureyrar, enda stórhátið þar í vændum, þar sem að systir Júlía kennari og frænka Ólöf hjúkka voru að fara að útkskrifast úr Háskólanum... Þannig að haldið fram norður á föstudegi með smá krók um Hvalfjörð, öllum til mikillar hamingju........ alltaf fallegt í Hvalfirðir (en það var nú ástæða fyrir króknum)
Þegar komið var norður var farið að klára að gera sal og tengja græjur og tól...
Laugardagur er komin og það er vaknað um 8 og haft sig til enda útskrift um 10:30... hver hefur útskrift fyrir hádegi uss uss... og ekki nóg með það að fólk er vakið upp fyrir allar aldir.... heldur eru útskriftarnemar nefndir Júlíanna.... nefnum engin nöfn, en júlíanna er engin stytting á Júlíu þannig að ég sé ekki hvernig hægt var að rugla þessu... en kellingarkjáninn var bjáninn...
En okey eftir góða stund með Forseta og félögum var farið út í sólina og pabbi og Eydís buðu okkur mér, Júlíu(eða var það Júlíana) og tveim ungum sveinum út að borða, áður en þau þurftu að bruna til baka..
Eftir matinn góða var haldið á vit ævintýra í Laugaborg í Hrafnagili... Allt var sett á 110 og gert klárt og svo byrjaði veislan í sól og sumri.. Það var ratleikur, góður matur, flottir leikir (og er ég þeim endalaust fegin að þurfa ekki að taka þátt í Funny bunny)og var ég búin að segja sól og gott fólk og ég.... og kennarinn og hjúkkan og allir hinir sem voru.. og svo má ekki gleyma Ómari og Steina sem eiga núna hug og hjarta allra gesta sem þarna voru... Þetta var frábært kvöld í alla staði og takk kærlega fyrir mig krúsípúttin mín..
Svo í gær var farið á prikið og Boston til að segja bless við Helgu og Trausta (snökt snökt) þar sem að þau voru að fara aftur í danska landið og það heljar stuð :)
En nú vil ég segja ykkur frá fáránlegum vinnudegi í dag... Ég mætti og við fórum að svara.. okey það var allt í lagi, ekki mikið að gera en okey.
svo í hádegismat(sem var 3 korter) var verið úti að grilla pulsur og pylsur og fengum við Unnur og pylsu og pulsur og svo kaffi í kaffigarði ....en þegar við ætluðum aftur í vinnu var sagt við okkur að fara út í sólbað, það væri ekkert að gera (já við vorum reknar í sólbað, og okkur var meira að segja bent á góðan sólstað), þau ætluðu svo að hringja í okkur þegar við mættum koma inn.. en eftir langan tíma fengum við nóg af sól og fórum inn og heimtuðum að fá að vinna og það fengum við loks að gera.. þannig að eftir hádegi þá var farið að vinna um 14:00 og svo á námskeið og aftur að vinna um 16:00 til 17:00... þannig að ég náði að svara um 3 símtölum eftir hádegi..... já svona er vinnan mín... :) þetta er frábær vinna
okey ég er hætt núna, þetta er búið að vera allt of langt......
mánudagur, júní 04, 2007
rigning og rok.. hmmm
já þá er það komið á hreint, sumarið er búið....okey kannski smá svartsýni hér á ferð, en þetta veður er heldur ekkert að vekja hjá manni bjartsýnina..
En nóg um það.. Þetta var nokkuð merkileg helgi, þessa helgi át ég Karfa,skötusel,indverskt,fiskipaté og steinbít.. hef held ég bara aldrei sett svona mikinn fisk inn fyrir mínar varir á eins stuttum tíma... ég get etið hendina á mér upp á það.
En ég gerði margt annað en að borða um helgina...til dæmis fór ég á djammið, já loksins gerðist það..... Kristín (ég) fór í bæinn á laugardagskvöldi.. húllum hæ fyrir því
En við skelltum okkur á Indian Mango..nammi namm namm nammi, og svo loksins klukkan tvö (tíminn leið svo hratt heima hjá Evu og Hjalta) þá var rölt í bæinn, ég,María, Ása og Heimir og fyrsti viðkomustaðurinn var Dillon,, yes what a surprise... En nú var allt reyklaust, frekar súrealískt að engin skildi vera að reykja inn á reykstaðnum sjálfum....
Eftir reyklausa viðkomu og einn bjór á Dillon var haldið á Prikið, Barinn átti að vera viðkomustaður en þar var biðröð og maður fer ekki í biðröð... En Prikið var staðurinn og þar var sest upp og spjallað og tjúttað við súper tónlist... þangað til........
hahaha, en það var snilld að koma heim og anga ekki eins og fullur öskubakki.. Þetta reykingarbann er algjörlega málið
En nú er vika tvö í vinnunni og allt er að gerast. Erum að vísu bara í hálftíma mat núna og alltaf til 5... en þetta er fjör og skemmtilegt fólk þannig að ekki kvarta ég... eigi þið góða rigningaviku gott fólk :)
þriðjudagur, maí 29, 2007
vinnuvika....
þá er þessi helgi búin í norðankulda og smá sól..
Fór norður í fermingu til hennar Tinnu skvísu..
Það var rosa fínt, var að vísu frekar léleg djammlega séð, reyndar mjög léleg þar sem að ég fór ekkert á djammið...
En ég fékk góðan mat og hitti fullt af ættingjum, hver öðrum betri.. Þannig að þetta var rosa gaman, enda Helga og Trausti komin á norðurslóðir og allt að gerast..
Þau voru nú frekar túristaleg á leiðinni norður, en ég, Júlía og þau fórum saman, og lentum við í snjó og smá byl og sól. En þau mynduðu í bak og fyrir og ekki má gleyma pylsunni góðu og lakkrísreimunum, já við vorum á framandi slóðum....
En já vinnuvika, það er langt síðan að ég hef notað þetta orð.. En það er satt, ég byrjaði í morgun, og fyrir hádegi þá var farið um öll hús símans og okkur leið eins og lömb til slátrunar eða þá eins og sýningargripum. En eftir hádegi þá byrjaði erfiðið.... þá var farið í Buzz á playstation, já þetta var erfiður dagur... Og svo er annar svipaður dagur á morgun.. En við erum í mánaðar kennslu fyrst ;)
En nóg um mig.........
endilega skoðið þið myndir af fermingunni á myndasíðunni minni...please :) svo fer hin síðan sem við töluðum um ( í fermingunni) að verða til ...
þriðjudagur, maí 22, 2007
1 ars

já nú er maður orðin 1. árs.....það er að segja að nú í dag (eða svona sirka) er maður eins árs löglegur myndlistamaður..
... á síðari myndinni sjái þið litla næli, en þetta er merki skólans og var það sett upp til heiðurs mér og hinum...
Það er semsagt útskrift í kvöld, og óska ég
Ásu
Ástu
Berglindi
Boggu
Hjalta
Línu
Lottu
Maríu
Petru
Steini
og Sveinku
innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga
eins óska ég samútskriftanemum til hamingju með 1.árs afmælið
föstudagur, maí 18, 2007
sól sol skin a mig..

já hún lætur ljós sitt skína þessi sól okkar, enda er ég búin að vera að drekka hana í mig...
En stjórnin er fallinn... :-) það er ekkert slæmt um að það segja
En allir þið sem eigið afmæli í dag... til hamingju elskurnar mínar,, knús knús
ég fór í klippingu í dag...
eins og við kannski lesið, þá er ekkert merkilegt í fréttum hjá mér.
1. ég vakna
2. fer á fætur og sinni þessum venjulegu morgunverkum hjá manni
3. skrepp kannski inn í bílskúr að mála, set kannski í þvottavél og tek svo úr henni aftur
4. þegar klukkan er svona um 14:00 þá gríp ég hjól, ef veður er gott og bruna upp í mosó og skelli mér á hestbak með Viggó. Viggó er maður en Skeggi er fákurinn mikli
5. hjóla svo aftur heim
6. svo er það bara þetta venjulega kvöld eins og er hjá öðru venjulegu fólki... það sem ég er að segja er að ég er venjuleg..
7. fer að sofa.
dagur búinn
þetta er svona hinn týpíski dagur, en oft koma dagar sem eru ekki svo týpískir, þá fer ég á eitthvað flakk, nú liggur leið mín upp í kartöflugeymslu, já sorry Fanney.. ég er á leiðinni, en eins og þið sjáið á þessu dagaprógrammi mínu þá er bara svo mikið að gera hjá mér..... ;)
ég sá sæta litla mús, mýs eru alltaf litlar, þetta bara hljómaði svo vel, lítið brún mús. En hún var upp í hesthúsið.
ég verð nú að segja að maður sakna Risessunnar smá, vantar einhverja stóra stelpu í miðbæinn..
nú er ég hætt og mun koma aftur þegar ég hef eitthvað vitlegt að segja, annað en að ég var í klippingu...
eigi þið góða helgi og sleikið þið sólina upp til agna
over.....and....out
sunnudagur, maí 13, 2007
Royal de Luxe bjargaði helginni

já hvað getur maður sagt.... ef það væri ekki fyrir Listahátíð og franska götuleikhússins Royal de Lux,þá væri þessi helgi hálf misheppnuð..Ekki nóg með það að við töpuðum í evrovision ( er föst á því að við eigum að hætta þessari vitleysu), heldur hélt ríkisstjórnin velli, vísu var að tvísýnt alveg fram að síðustu tölum, þannig að þetta var spennandi kostningavaka, ég vona samt að Framsókn sjái sóma sinn í því að draga sig úr, þar sem að þeirra fylgi var yfrleitt verra á flestum stöðum en í síðustu kostningum. Enda verð ég að segja án þess að ég ætla að vera neitt leiðinleg... þá held ég að framsókn eigi metið í að hafa leiðinlegt og óspennandi fólk í flokknum sínum og þurfa þau að fara að taka sig verulega á ef þau ætla að ná einhverjum hæðum á ný...
En nóg um pólitík...
tölum um Listahátið og mitt uppáhald og yndi... Risessuna
ég er búin að fara á Cobra-sýninguna, flott sýning og gaman að sjá þessi verk svona fyrir framan sig, svo fór ég í Kling&bang í gær ( ekki fara þangað á leið út að borða, borðið áður, lítil stelpa tekur sér bólfestu í listamanninum... og litlar stelpur er ekki alltaf góðar), svo sá ég Roni Horn....
En helgin snerist eiginlega um söguna af Risessunni og pabba hennar, þetta var snilld fram í fingurgóma, enda fylgdi ég henni eftir frá byrjun til enda, og ég hef aldrei séð 8 metra háa brúðu áður sem er svona fríð og góðleg(hef að vísu aldrei séð 8 metra háa Risessu áður), eins og margir hafa sagt og ég segi það líka, þetta var 8 metra há Björk.. En þetta verður upplifun sem gleymist aldrei, enda á ég yfir 300 myndir því til sönnunnar, það er ekki frá því að ég sakni hennar núna :)
þannig að þessari helgi og já auðvitað borginni okkar var bjargað af Risessunni, enda er Risinn farinn í sjóinn og er hættur að skemma bíla bæjarins..
þangað til næst..verð ég í Risessulandi.. farið á myndasíðuna mína og skoðið fleiri myndir af Risessunni og pabba hennar
mánudagur, maí 07, 2007
101..
já þetta er póstur númer 101...
Þeir sem mig þekkja vita að ég er hið mesta gæðablóð og þolinmóð með eindæmum og geðgóð... það mætti setja mig í flokk með Dali lama, við erum með álíka mikla hugarró.....
En jafnvel Dali Lama reiðist(hef ég að vísu engan vitnisburð um það... en maður, jú hann er maður er nú mannlegur) og einnig ég(hef vitnisburð um það) og eitt slíkt gerðist í morgun.. Okey ég skal bara segja söguna frá byrjun.
það var um svona rétt fyrir 8 að ég vaknaði.... og fór svo fram um hálf 9 og þetta leit út fyrir að ætla að vera frábær dagur, sól og syngjandi fuglar úti og tilhugsunin um að fara að hjóla á nýja hjólinu dreif mig af stað. En fyrst ætlaði ég að hækka stýrið, allt leit vel út ég sá að ég gat skrúfað þetta þarna í sundur og tekið þessar skrúfur... já ég vissi hvað þurfti að gera......
Fann ekki sexkant sem var nógu breiður, tók þá borvélina og reddaði þessu þannig, náði loks að skrúfa(hjólið er ekki komið með standara ennþá þannig að ég þurfti líka að halda því uppi) okey eftir langan tíma að reyna koma þessum skrúfum úr þá hafðist það...... en til að gera langa og sársaukafulla sögu stutta. Þá var mikið um blót, mikið blót og barssmíðar og ég var kýld utanundir af borvél, var að hugsa um að kæra... en er ekki viss hvort ég myndi vinna. En eftir um 2 tíma af blóti, ofbelti og hugsun um að brenna hjólið, þá andaði ég léttar og setti helvítið saman, já ég náði sem sagt ekki að hækka stýrið... og ákvað bara að koma mér af stað og játa mig sigraða....
En nei þetta var ekki búið þá, þá er sagan um rauða hjálminn eftir.....
Ég var heillengi að ná að setja hann í rétta stærð, böndinn voru annað hvort of stutt eða of löng... en svo loks,loks kom þetta og brosið var næstum alveg komið... þegar (það eru smellur sem þarf að opna til að laga böndið) ég smellti smellunni og beint á puttann, þannig að það var bara stykki sem að klemmmmdist á milli og brosið fór af um leið og nokkur ný blótsyrði urðu til...
En hjálmurinn fór á og plástur á puttann og hjólinu komið út og á bak... nei nei þá heyrðust einhverjir skruðningar sem ætluðu ekkert að hætta þannig að ég hjólaði aftur heim og fór yfir allt hel... hjólið og fann ástæðuna.. og okey ég skal taka þetta á mig.. þetta var lásinn sem fór alltaf í afturhjólið...
En nú er langt liðið á dag, ég komst heil úr hjólatúrnum, Gulli er búin að hækka stýrið... og svo merkilegast af ÖLLU
ÉG ER BÚIN AÐ FARA Í 12TÓNA OG FÁ MÉR BJARKARDISKINN VOLTA...
happy volta-day people og passið ykkur á hjólunum, þetta eru stundum tæki hina illu

sunnudagur, maí 06, 2007
merkisfrettir
eins og þeir sem hafa lesið bloggin mín, vita að ég læt aldrei neitt ógáfulegt frá mér, enda er ég með þessari síðu að deila með ykkur gáfum mínum og fréttum.....
En allavega þá er ég með hina merkilegustu frétt hér.... Ég fór í IKEA í gær, og get ég nú ekki lengur sagt að ég hafi ekki komið í IKEA. Þar sem að ég hef komið í IKEA
Og fyrst að við erum að tala um merkilegar fréttir, þá hef ég aðra fyrir ykkur sem er álíka krassandi....
Ég keypti mér hjól í dag... já nú fer ég að arka, nei sorry hjóla um götur og torg og upp í Mosó, já ég hjóla stundum þangað(hef nú labbað þangað líka) í heimsókn til ömmu og afa og auðvitað til hans Skeggja, sem er hestur og býr í fyrstu röð, í bás næst vegg í hestuhúsahverfinu í Mosó
Nú er sólin farin að brenna mig á hálsinum og þá verð ég að koma mér út
föstudagur, maí 04, 2007
við skulum fa þetta a hreint..
já nú hafa kannski einhverjir tekið eftir því að ég er með á msn-inu mínu að ég væri að pæla í að flytja norður.. Ég skrifaði þetta í vonduveðurskapi á mánudaginn, þar sem að það var svo miklu betra veður fyrir norðan en hér fyrir sunnan, enda var ég fyrir norðan alla síðustu helgi í sumarfíling með ís í hendi.. Svo kom maður hingað suður og okey það var kannski sól en það var ekki þessi sumarhiti, þannig að Kristín(sem er ég, ef það hefur farið fram hjá ykkur) var ekki kát í skapi, enda komin í sumarhitafílinginn..... En ég held að ég sé ekkert að fara að flytja norður í bráð, þótt að ég hafi farið síðustu helgi og fer um Hvítasunnuna og fyrstu helgina í júní, ég neita því samt ekki að það er alltaf gaman að kíkja norður og sjá hvað norðanfólkið mitt er að gera af sér ;)
Þá er það komið á hreint, elskurnar mínar... og Júlía það var ekkert mál, en það er eins gott að þú hafir borðar ALLA kökuna mína í gær..... :)
Flugvöllurinn skal vera þar sem hann er og ekkert meir um að það að segja.. hananú
mánudagur, apríl 30, 2007
hver þarf utlönd þegar maður hefur Akureyri

já ég var í sólinni á Akureyri um helgina og þvílíkur hiti....
Ástæðan fyrir þessari Akureyrar heimsókn var ferming hjá Unu á laugardeginum, en það var farið á föstudeginum og auðvitað farið beint á Karó, fyrst til Maríu og svo á Kaffi Karó og þetta var hið fínasta kvöld og fyndið og bilað og fjörugt, allt í einu..
Daginn eftir var auðvitað sól og farið var út, svo kom ferming sem endaði að vísu ekki fyrr en eftir 10 um kvöldið, þar sem að það var farið í fylkingu inn eyjafjörðinn á 5 bílum, þannig beilaði ég á leikhúsferðinni.
En svo auðvitað daginn eftir var enn meiri sól og enn meiri hiti, og farið var í bæ á ný og svo að endingu var farið til Reykjavíkur með trega, enda vont að fara frá svona súper veðri..
En þetta var helgin svona í hnotskurn, ég er farin að sjá það að ég djamma eiginlega bara á Akureyri nú orðið.. enda þegar maður hefur Kaffi Karó þá er aldrei leiðinleg stund... allavega ekki margar, og ef svo er, þá fær maður sér bara annan bolla af kaffi eða (þegar við á) annað glas af bjór og þá er málinu reddað.... skál !!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)