sunnudagur, apríl 23, 2006

vika í skil

já nú er bara vika í skil á loka lokaverki.... það er rosalegt. loka loka loka lokaskil.. úffff ótrúlegt en satt.

Ég er aftur komin norður enda ekki seinna vænna þar sem að það er bara vika í lokaskil.. var ég búin að segja það..
En hér er bara sól núna og rosa fínt,en örugglega drullu kalt, hef ekki farið út þannig að ég veit það ekki með vissu.

En vitiði að ég hef voðalega lítið annað að segja, það er bara setið við tölvuna, stundum lært stundum ekki, en það er alltaf hugsað.

Já ef þið vitið hvað gælunafn Isis er, Isis var kona Osiris sem var guð dauðans í Egyptalandi til forna. Mig bráðvantar að vita það áður en ég verð vitlaus, tengist þetta verkinu... Nei nei, en mig vantar samt að vita það.

En best að fara að halda áfram að skrifa í bók... já það tengist verkinu sem verður loka loka lokaverk....

2 ummæli:

fanney ósk sizemore sagði...

http://www.touregypt.net/isis.htm
kannski hjálpar þetta

kristin sagði...

já ég veit það með systkynin, ég er búin að lesa allt um þau sem ég mögulega get en það er sama ég er ekkert að finna þetta og meðan að það gerist er ég ekki að komast áfram í the satan´s game vvvuuuaaaaa