fimmtudagur, janúar 04, 2007

januar, februar...........

já nú er mánuður í febrúar og við vitum hvað það þýðir, eða ég veit það... þá er mánuður í sýningu hjá mér og nei ég ætla ekki að vera með teningana, bara svona svo það komi fram. En ég fór á sýningu um daginn í kling og bang mjög fín sýning hjá þeim , nema karamelluhúðuðu eplin voru ekki að gera sig fyrir mig, þetta var flott en þessi sæti ilmur fór alveg upp í heila og hélt partý þar fyrir sellurnar...

En nú eru jólin alveg að verða búin og það er alveg fínt, já já ég elska jólin en ég elska líka þegar allt fer í sinn gamla góða farveg eða árveg hmmm aftur, enda ætla ég bráðum að fara að gera eitthvað af viti, enda löngum kominn tími á það....
en á meðan mun ég halda áfram lestir bóka á meðan ég bíð eftir að málningin á teningunum þornar... þannig að þetta er mála, lesa, mála, lesa en núna þarf ég að pússa.................

púss púss ég er farin að pússa...........

2 ummæli:

kristin sagði...

já en bráðum mun mitt breytast í sofa, stress,sofa stress sofa og svo á endanum fæ ég magasár... eða verð bara með sýningu... :)

Nafnlaus sagði...

hey jó hvar er sýning ?