laugardagur, janúar 27, 2007

laugardagur sem mun flokkast sem glamur og glimmer

já ég er fyrir norðan, kom í gær.

En nú er vika í sýningu úúúú,,,,,,........

En já það er laugardagur og ég er búin að gera svo margt síðast liðna viku.. ég er búin að skamma Dag fyrir Jónba, ég er búin að láta klippa á mér hárið (og líka hluta af því af), ég er búin að kaupa mér draumaglimmerbuxurnar og ég er búin að ferðast alla leið norður.

Þannig að hér er ég nú og mun vera einhverja daga röltandi um á milli snjóhóla.
En í kvöld er það mál mannanna, já þetta er rosa kvöld.

Það er leikur (semvið vinnum), það er evróvisíon (sem mér er alveg sama hvernig fer,þetta getur nefnilega ekki versnað) og svo er það glimmer glamúr partý hjá Krummu (sem ég bara hef ekki hugmynd um hver er), en ég fer samt og verð svo mikið glimmer og glamúr að fólk fær ofbirtu í augun við það eitt að sjá mig labba.

En svo verður morgundagurinn að láta í ljós, hvort að við höfum unnið, hvaða lög bætast við þennan ömurlega lagalista sem kominn er og svo loks, hver þessi Krumma er.......

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Kristín
Ég var að kynnast þessu Interneti og sé að þetta er bara helvíti sniðugt. En þetta er nú sennilega bara bóla eins og fótanuddtækin og sódastrímið. En þegar ég skoða þetta Internet þá rekst ég einhvervneginn inn á þessa síðu af síðu Steins Kristjánssonar. Mér þótti skemmtilegt að lesa mér til um hvað drifið hefur á daga þína en eitt fannst mér öðru fyndnara. En það var að sjá að við erum orðin 31 ;) Satt best að segja þá hló ég upphátt þangað til gervitennurnar mínar duttu út úr mér og á göngugrindina. Annars hef ég ekkert að segja nema bara
kíp op þe gúd job og bið að heilsa Hauksyni, Ásdísi Júlíu og rest.

Kv GG

PS hver er nú það :)

kristin sagði...

já Gestur Gunnars, það er gott að þú hefur náð að kynnast þessu neti, og býst ég við að það sé nýju tölvunni að þakka, en þó vona ég að þessi bóla springi ekki eins fljótt og fótanuddtækin góðu..... já þessi tala 31.. hún er svoltið vafasöm og mun ég halda í töluna 30 allt þetta ár, enda stórskemmtilega tala, 31 hljómar svo grimmilega..

En ég var nú einmitt í glimmer/glamúr partýi í gær ásamt honum Stein, enda erum við fyrrverandi laugvetningar svo glamúr :)

Unknown sagði...

Glamúr er málið og kálið í dag og drottning glimmers og glamúrs er að sjálfsögðu Steinn Kristjánsson!!! Glimmer tútta dauðans.

Kv Gestur G