þriðjudagur, apríl 03, 2007

lóan og flugan komin

nú er lóan komin og einnig fyrsta fluga ársins, já flugan komí heimsókn til mín í gær, þannig að nú er ekki langt í kóngulær og járnsmiði sem sagt sumarið fer að koma...

En fyrst eru það tónleikar Bjarkar í höllinni 9.apríl sem ég er að fara á

Ég fór á opnun hjá henni Söru á laugardaginn á Kaffi Vor, (sem er við hliðina á Barnum), mæli með henni, hún er með rosalega flottar og kröftugar myndir,farið að kíkja. Ég ætlaði nú líka að kíkja á vin minn hann Spessa haha en ég gerði það ekki, ég fer seinna..

En þetta er orðið gott og munið að Volta kemur út 7. maí..

3 ummæli:

fanney ósk sizemore sagði...

já, sumarið er að koma. Sá dauðan eða latan geitung um daginn :(

Karen Dúa sagði...

Hversu mikið væri ég til í að sjá Hot Chip á eftir Björk. Mikið...

kristin sagði...

já það er algjör snilld að hafa þá þarna á eftir, hélt að þeir myndu byrja en ekki er þetta verra.. ef það má taka vélar inn þá á ég eftir að taka fullt af myndum og setja hér inn á bloggið