föstudagur, maí 04, 2007

við skulum fa þetta a hreint..


já nú hafa kannski einhverjir tekið eftir því að ég er með á msn-inu mínu að ég væri að pæla í að flytja norður.. Ég skrifaði þetta í vonduveðurskapi á mánudaginn, þar sem að það var svo miklu betra veður fyrir norðan en hér fyrir sunnan, enda var ég fyrir norðan alla síðustu helgi í sumarfíling með ís í hendi.. Svo kom maður hingað suður og okey það var kannski sól en það var ekki þessi sumarhiti, þannig að Kristín(sem er ég, ef það hefur farið fram hjá ykkur) var ekki kát í skapi, enda komin í sumarhitafílinginn..... En ég held að ég sé ekkert að fara að flytja norður í bráð, þótt að ég hafi farið síðustu helgi og fer um Hvítasunnuna og fyrstu helgina í júní, ég neita því samt ekki að það er alltaf gaman að kíkja norður og sjá hvað norðanfólkið mitt er að gera af sér ;)

Þá er það komið á hreint, elskurnar mínar... og Júlía það var ekkert mál, en það er eins gott að þú hafir borðar ALLA kökuna mína í gær..... :)

Flugvöllurinn skal vera þar sem hann er og ekkert meir um að það að segja.. hananú

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er pínulítið eftir af henni og ég ætla að borða það eftir kvöldmatinn nammi namm

kristin sagði...

ég held að þetta hafi verið með ráðum gert, að ég átti að búa til tvær.........