sunnudagur, ágúst 12, 2007

sýning í gangi

já það er sýning í gangi, það eru reyndar tvær sýningar í gangi, ein fyrir norðan, handverksýningin í Hrafnagili, en þar er grállistahópurinn að sýna og svo er auðvitað aðalsýningin........

En það er MÍN sýning á Kaffi VOR á Laugarvegi, (á milli skífunnar og Barsins) og svo er Kling og bang á móti... en þar verð ég með sýningu til 9. sept... og allt er til sölu... nema það sem er selt nú þegar, það er ekki lengur til sölu en hitt er til sölu, það sem er ekki með rauðan depil fyrir neðan sig er til sölu..... you got it...

En ég er enn með veika löpp og má ekkert gera(ég má ekkert gera en ég geri sumt).. á að nota hækjur og nota þær stundum.... já stundum en ég nota þær allavega stundum....
ég má svo ekki fara að vinna fyrr en á fimmtudaginn og ég verð að segja að ég hlakka til... já ég bara verð að segja það... ég hlakka til að fara að vinna aftur.. i just had to say that

En meira hef ég ekki að segja.... Það var opnun í dag og það var að vísu ekkert voðalega fjölmennt en það var afskaplega góðmennt, enda voru bara fleiri snittur fyrir okkur....

Og nú er ég farin að lesa Harry Potter....

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með sýninguna þína, hún er frábær, kv. ásdís

Karen Dúa sagði...

til hamingju með þetta allt saman, vonandi að ég geti nú skotist suður og séð eitthvað af þessu...
kveðja
Karen

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ Kristín,

Kíkti á sýninguna þína á laugardaginn og var voðalega stollt af því að vera skyld listamanninum:-)
Gangi þér sem allra best
Þín frænka
Hjördís

kristin sagði...

takk takk fína og fallega fólk fyrir þessi fallegur orð :)

Nafnlaus sagði...

Bíddu... Hvað er aftur til sölu ?

kristin sagði...

ég er til sölu....